Föstudagur 19. apríl 2024
Kveðja til Vestfirðinga frá biskupi Íslands

Kveðja til Vestfirðinga frá biskupi Íslands

Bænir mínar, hugur og hjarta eru hjá Flateyringum, Súgfirðingum og öðrum Vestfirðingum.

Það er Guðsblessun að eiga jafn öflugar björgunarsveitir og aðra vaska viðbragsaðila sem raun ber vitni við jafn krefjandi aðstæður. Það lýsti upp annars dimman janúarmánuð að engin hafi farist í þessum hamförum.

Það er þakkarvert að stúlkan sem lenti í flóðinu skyldi bjargast. Sú gleði lífgar upp á daufa daga.

Ljóst er að mikið eignatjón hefur orðið og framundan uppbygging og endurheimt í samfélaginu. Slíkt þekkja Flateyringar vel og hafa sannað að þolgæði þeirra, styrkur og samheldni mun lýsa upp framtíð þorpsins og tryggja að líf, gleði og starf tapist aldrei í þorpinu.

Þær skelfilegu hamfarir í Súðavík og á Flateyri árið 1995 hvíla enn þungt í minningu okkar allra og ýfast upp við atburð eins og þennan.

Starfsfólk kirkjunnar er til staðar til að gæta, hugga og hefja endurreisn með íbúum.

Það er hafið, fjöllin og fólkið – það veit ég sem Vestfirðingur.

Guð geymi ykkur og varðveiti í ykkar baráttu.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands

DEILA