Svartolía bönnuð

Breytingin hefur áhrif á skemmtiferðaskip. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skrifað undir reglugerð um hertar kröfur varðandi eldsneyti í íslenskri landhelgi, sem í raun bannar notkun svartolíu innan hennar. Bannið er meðal annars liður í að framfylgja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem og stjórnarsáttmála.

Svartolía er meðal annars notuð í skipasiglingum og þegar hún brennur losnar mikið af sóti úti í andrúmsloftið. Svartolía er í raun samheiti yfir þungar og seigar olíur sem eru með ákveðna eiginleika og geta innihaldið hátt hlutfall brennisteins.

Um er að ræða breytingu á reglugerð nr. 124/2015 um brennisteinsinnihald í tilteknu fljótandi eldsneyti. Auk tilætlaðs ávinnings fyrir loftslagið er breytingunni ætlað að stuðla að betri loftgæðum við strendur Íslands og hvetja til notkunar á loftslagsvænni orkugjöfum á skipum.
Með breytingunum verður leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti á Íslandi einungis 0,1% innan landhelginnar og á innsævi, það er einnig í fjörðum og flóum. Leyfilegt innihald er í dag 3,5%.

Breytingarnar taka gildi 1. janúar n.k. og sama dag taka þær breytingar gildi að innan mengunarlögsögunnar en utan landhelginnar mun leyfilegt brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti lækka niður í 0,5%.

DEILA