Norðureyri kaupir bát í stað Einars Guðnasonar ÍS

Von GK 113 á siglingu. Mynd: aðsend.

Norðureyri ehf hefur fest kaup á línubátnum Von GK 113 af Útgerðarfélagi Sandgerðis ehf.

Báturinn er 15 tonna krókaaflamarksbátur smíðaður árið 2008 og er búinn beitningavél. Óðinn Gestsson framkvæmdastjóri Íslandssögu, eins eiganda Norðureyrar ehf sagði í samtali við Bæjarins besta að báturinn kæmi vestur næstu daga. Með kaupunum er verið að leysa tímabundið úr þeim vanda sem skapaðist við strand á báti fyrirtækisins við Gölt á dögunum. Síðar verður tekin endanleg ákvörðun um skipakost félagsins.

DEILA