Stígamót með viðtalsþjónustu á Ísafirði

Stígamót hefur nú opnað aftur viðtalsþjónustu á Ísafirði og mun vera með viðtöl í einn eða tvo daga í mánuði. Brotaþolar og aðstandendur geta sett sig samband við fulltrúa Stígamóta í síma 562-6868 eða sent póst til karen@stigamot.is og fengið tíma.

 

Að sögn fulltrúa Stígamóta var þjónustan vel nýtt í fyrra og er liður í þjónustu sem kallast Stígamót á Staðinn.

DEILA