Heilbrigðisstofnun Vestfjarða bætir aðgengi að sérfræðilæknum

Landsspítalinn hefur verið styrktur um 5 milljónir króna til að þróa áfram lausnir í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða að bættu aðgengi að sérfræðilæknum. Stofnanirnar hafa frá áramótum unnið að því að gera sjúklingum á Vestfjörðum mögulegt að eiga samtal við geðlækni með öruggri leið í gegnum Heilsugátt.  Styrkurinn er veittur af byggðaáætlun Alþingis.

Gylfi Ólafsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða segir að myndbúnaður þurfi að vera fullkomlega öruggur og bæta þurfi verkferla til að uppfylla kröfur um öryggi heilbrigðisupplýsinga. Ástæða þess að Landsspítalinn fékk styrkinn en ekki HVEST er að sögn Gylfa sú að læknarnir sem eru einkum að þróa þessa leið eru starfandi á Landspítalanum. Ætlunin er að nota styrkinn að hluta til a.m.k. til þess að til að þróa þessa samskiptaleið enn frekar og koma henni í dagleg not segir í frétt frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Konsúlt framtíðarinnar

Þörf lækna og hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni fyrir aðstoð og ráðleggingar frá sérfræðingum Landspítala er mikil, líkt og segir í verkefnalýsingu Landspítalans. Mest af þessum samskiptum fer fram með símtölum og tölvupóstum eins og staðan er í dag. Þróunarverkefnið  — sem á Landspítala er kallað „Konsúlt framtíðarinnar“ — snýst um að útbúa farveg fyrir ýmsar samskiptaleiðir sem auðvelda „konsúlt“ og tryggja örugga skráningu upplýsinga í sjúkraskrá. Þannig geti sérfræðingar Landspítala og viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður við heilbrigðisstofnun úti á landi farið saman yfir sjúkrasögu sjúklings, skoðað blóðniðurstöður, hjartalínurit, röntgenmyndir o.fl. og enn fremur fengið aðstoð kerfisins til að leita uppi viðeigandi sérfræðinga þegar þess gerist þörf ef um alvarleg sjúkdómstilfelli er að ræða. Landspítali áætlar að virkni eins og að framan er lýst geti verið tilbúin til notkunar vorið 2020 og verði þá kynnt fyrir heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.

DEILA