Vestfirðir settir á áætlun um hjúkrunarrými

Sjúkrahúsið á Patreksfirði. Mynd : hvest.is

Heilbrigðisráðuneytið birti í gær viðbót við uppbyggingaráætlun um hjúkrunarrými fram til 2023. Í breytingunni eru gagngerar endurbætur á 11 hjúkrunarrýmum á Patreksfirði sem á að vera lokið 2023 og 10 ný hjúkrunarrými á Ísafirði sem taka á í notkun 2024.

Á Patreksfirði eru hjúkrunarrými nú í húsnæði sem er úr sér gengið og ekki í samræmi við nútímakröfur. Þannig eru mörg tveggja manna herbergi og eitt þriggja manna. Lengi hefur verið beðið eftir úrbótum, en ekki gert ráð fyrir fjölgun rýma. Hjúkrunarrýmin eru rekin samhliða sjúkrarýmum og þó áfram verði samrekstur eru kröfur sem gerðar eru til þessara tveggja eininga mismunandi og þarf aðbúnaður að taka tillit til þess. Einnig er komin þörf á talsverðar endurbætur á eldhúsi og ýmsum húsakosti. Ekki hefur verið ákveðið hvort og hvernig byggt verður við núverandi húsnæði. Áætlað er að framkvæmdum ljúki 2023.

Á Ísafirði opnaði hjúkrunarheimilið Eyri um áramótin 2015-16 með þremur tíu rýma einingum og leysti þá af hólmi öldrunardeildina á sjúkrahúsinu. Alltaf var ljóst að þörf yrði fyrir fjórðu eininguna og var húsið hannað með það í huga að hafa pláss fyrir hana á lóðinni. Hjúkrunarheimilið var byggt með svokallaðri leiguleið, þar sem Ísafjarðarbær á og rekur húsnæðið og leigir Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Ekki er lengur byggt með leiguleiðinni. Áætlað er að framkvæmdum ljúki 2024.

Næstu skref eru þau að Framkvæmdasýsla ríkisins fær verkefnin tvö til undirbúnings. Þar þarf meðal annars að eiga samráð við sveitarfélög á svæðunum.

„Reiknilíkön hafa lengi sýnt aukna þörf fyrir hjúkrunarrými á Ísafirði, og léleg aðstaða á Patreksfirði hefur verið öllum ljós og óviðunandi. Við klippum ekki á borðana á morgun enda mörg úrlausnarefni eftir, en bæði loforð og tímaáætlun gera alla áætlanagerð einfaldari,“ segir Gylfi Ólafsson forstjóri.

Kostnaður við byggingu hvers hjúkrunarrýmis er á núverandi verðlagi um 38 m.kr. sem samsvarar u.þ.b. þriggja ára rekstrarkostnaði hvers hjúkrunarrýmis. Kostnaður við endurbætur á rými hafa að jafnaði verið áætlaðar um 75% af þeim kostnaði.

Útlínur fyrirhugaðrar viðbyggingar við Eyri á Ísafirði.
Mynd: hvest.is
DEILA