Nýtt raðhús afhent á Reykhólum í gær

Nýja raðhúsið. Mynd: reykholar.is

Í gær afhenti Sigurður Garðarsson f.h. Hrafnshóls ehf. Reykhólahreppi nýtt raðhús, þrjár íbúðir. Tryggvi Harðarsom sveitarstjóri tók við húsinu f.h. Reykhólahrepps. Aðeins fjóra mánuði tók að reisa og ganga frá húsunum. Væntanlegir leigendur tóku við lyklum að íbúðunum upp úr hádegi í dag.

 

Tryggvi segir að með þessu nýja raðhúsi fjölgi íbúðum á Reykhólum utan stofnanna um 10% en ekkert íbúðarhúsnæði hafi verið byggt á Reykhólum í áratug. Hann segir að stefnt verði að því að selja íbúðirnar inn í sjálfseignarhúsnæðisfélag.

,,Félagsmálaráðherra hefur verið og er að láta vinna úrlausnir fyrir sveitarfélög til að geta byggt ný hús á svæðum við erfiðar markaðsaðstæður. Ég bind miklar vonir við að sú vinna skili sér til hagsbóta fyrir sveitarfélög á landsbyggðinni“, bætir Tryggvi við.

Frá þessu er greint á vef Reykhólahrepps.

DEILA