Mikið tjón í Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar

Það var heldur óskemmtileg aðkoma starfsfólks íþróttamiðstöðvar Tálknafjarðar í gærmorgun þegar í ljós kom að lagnakjallarinn var fullur af vatni og öllu rafmagni slegið út. Bjarnveig Guðbrandsdóttir forstöðukona íþróttmiðstöðvar kallaði þegar til slökkviliðið sem brást skjótt við og sundlaugargarðurinn fylltist af slökkviliðsmönnum, dælum og slöngum og dælt var upp úr kjallaranum og allir pottar og sundlaug tæmd. Bryndís Sigurðardóttir sveitarstjóri segir að öllum líkindum hafi heitavatnslögn farið í sundur og vatnið runnið gegnum lagnarými útipotta inn í kjallara hússins.

Hún segir tjónið vera gríðarlegt og mun fulltrúi tryggingarfélags sveitarfélagsins líta á vettvang í dag.

Því miður má reikna með að íþróttamiðstöðin verði lokuð í nokkurn tíma því ekkert heitt vatn er á húsinu og rafmagn óstöðugt.

Bryndís segir að Slökkvilið Tálknafjarðar og Vesturbyggðar hafi staðið sig afbragðsvel og  brugðist skjótt við.

Myndir af talknafjordur.is.
DEILA