Vesturbyggð: styður Þ-H leið í Reykhólahreppi

Bæjarráð Vesturbyggðar tók fyrir á fundi sínum í síðustu viku erindi dags. 20. júní sl. frá Reykhólahreppi þar sem athygli er vakin á því að auglýst hefur verið breyting á Aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna breytingar á veglínu Vestfjarðavegar frá Bjarkalundi að Skálanesi við Þorskafjörð. Sveitarfélagið óskar eftir umsögnum og athugasemdum vegna breytingatillögunnar og er athgasemdafrestur til sunnudagsins 25. ágúst nk.

Hraða málinu
Bæjarráð Vesturbyggðar fagnar því að breytingin hafi verið auglýst og gerir ekki athugasemdir við hana.

Bæjarráð Vesturbyggðar leggur áherslu á mikilvægi þess að málið hljóti hraða og farsæla afgreiðslu í ljósi þess að um afar brýna samgöngubót er að ræða fyrir íbúa og fyrirtæki á Vestfjörðum.

DEILA