Vestfjarðavíkingurinn 2019: keppni hafin

Frá keppninni á Hólmavík. Mynd: Jón Jónsson.

Keppni hófst í dag um Vestfjarðavíkinginn 2019. Keppt er í Strandasýslu. Byrjað var á Hólmavík og var fyrsta keppnisgreinin að ýta bíl. Síðan færðist keppnin til Djúpuvíkur og keppt í sirkus handlóðum.  Kl 18 í kvöld verður keppt í Norðurfirði í kútakasti.

Á morgun heldur keppnin áfram og verður keppt í Súðavík og á Þingeyri.

Í Súðavík verður keppt í  Raggagarði í steinapressum frá kl 12 og kl:17:00 hefst næsta þraut og verður hún á Þingeyri. Þar verður keppt við Sundlaugina  í tunnuhleðslu.

Laugardagur 13.júlí hefst keppnin Kl:11:00 á Suðureyri við  Sjöstjörnuna  og keppt verður í réttstöðulyftu.

Síðan verður farið aftur til Þingeyrar og tvær síðustu greinarnar fara þar fram.

Kl:14:00 á Víkingasvæðinu verður keppt í bóndagöngu. og  Kl:15:00  í steina tökum upp á öxl.

Frá keppnisstað á Hólmavík.
Mynd: Jón Jónsson.
Kraftakarl ýtir bíl.
Mynd: Jón Halldórsson.

 

DEILA