Samkomulag um endurnýjun sjúkrabifreiða

Sjúkratryggingar Íslands og Rauði krossinn á Íslandi hafa náð samkomulagi um framlengingu á samningi um kaup og rekstur sjúkrabifreiða til loka árs 2022. Heilbrigðisráðherra staðfesti samkomulagið við undirritun þess í gær. Tafarlaust verður ráðist í kaup á 25 nýjum sjúkrabifreiðum samkvæmt útboði sem nú stendur yfir og má vænta þess að fyrstu bílarnir verði teknir í notkun á árinu 2020. Reiknað er með að stærsti hluti bílaflotans verði endurnýjaður á samningstímanum.

Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi sagði í samtali við Bæjarins besta að ekki væri komið svo langt að ákveða hvar yrði fyrst endurnýjaðar bifreiðar. Rauði krossinn er með 80-84 bifreiðar í rekstri að sögn Kristínar en í samingnum við ríkið sem gilti 2012-2015 væri gert ráð fyrir 68 bifreiðum.

Fram hefur komið á bb.is að ástand bifreiða á Ísafirði sé fjarri því að vera í nógu góðu lagi.

Samkvæmt nánari upplýsingum frá Rauða krossinum eru fimm sjúkrabifreiðar á Vestfjörðum á vegum Rauða krossins. Það eru tvær á Ísafirði, tvær á Patreksfirði og ein á Þingeyri.  Það er ekki enn búið að ákveða hversu margir bílar verða endurnýjaðir á þessum stöðum en ljóst er að endurnýja þarf á einhvern hluta af þeim.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra segir mikið fagnaðarefni að löngum viðræðum við Rauða krossinn á Íslandi hafi lokið með þessum farsæla hætti: „Rauði krossinn hefur sinnt þessu mikilvæga verkefni af fagmennsku og alúð allt frá því að fyrsti sjúkrabíllinn kom til landsins. Það er ánægjulegt að samstarf okkar við félagið haldi áfram. Af hálfu ríkisins hefur verið lögð áhersla á tryggja snurðulausan rekstur og ábyrga meðferð fjármuna til lengri tíma. Öllum ágreiningi hefur verið ýtt til hliðar og hagsmunir almennings og heilbrigðiskerfisins settir í forgang.“

María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands: „Það er ánægjulegt að hafa náð langþráðu samkomulagi um rekstur sjúkrabifreiða. Samstarf okkar og Rauða krossins hefur ávallt verið gott og við hlökkum til að ráðast nú í það verkefni að endurnýja bílaflotann og tryggja sjúkraflutningafólki og skjólstæðingum þess eins öruggar aðstæður og kostur er.“

Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi: „Með þessu samkomulagi hefur tekist að jafna ágreining og framlengja það sameiginlega verkefni okkar og stjórnvalda að annast sjúkraflutninga í landinu. Rauði krossinn á Íslandi hefur nú annast þessa þjónustu við góðan orðstír í hartnær hundrað ár. Sjúkraflutningaþjónustan er samofin sögu félagsins allt frá stofnun þess og við lítum í senn hreykin um öxl og full tilhlökkunar fram á veginn.“

 

DEILA