Hvalárvirkjun lykilatriði í uppbyggingu raforkukerfisins á Vestfjörðum

Hvalárvirkjun er lykilatriði í uppbyggingu raforkukerfsins á Vestfjörðum. Þetta er ekki mín skoðun byggð á tilfinningum, heldur grjóthörð staðreynd fengin frá Landsneti. Við höfum mörg skoðanir á Hvalárvirkjun sem er gott og blessað, enda búum við sem betur fer við tjáningarfrelsi og hikum ekki við að koma skoðunum okkar á framfæri. En í lok dags eru það staðreyndir í málinu frá okkar færustu sérfræðingum sem ég kýs að taka mark á. Af umræðunni að dæma skipta þær suma engu máli sem gerir það að verkum að erfitt er að ræða málið af einhverri skynsemi.

Lausn við orkuskorti

Það hefur verið karpað um það í fjölmiðlum sl. daga hvort yfirvofandi sé orkuskortur á Íslandi í náinni framtíð. Stjórnendur Landsnets og RARIK hafa haldið því fram. Hver er lausnin? Skynsamleg nýting orkuauðlinda okkar. Það er allavega á hreinu að orkuleysið, afhendingaröryggið og tíðar rafmagnstruflanir hafa hindrað eflingu atvinnulífs á Vestfjörðum. Rafmagnstruflanirnar hafa kostað fyrirtækin á svæðinu háar upphæðir því þær valda skemmdum á tækjabúnaði og vinnutapi. Hvalárvirkjun er eina raunhæfa lausnin við þessu vandamáli. Það er staðreynd. Andstæðingar umhverfisvænnar orkuframleiðslu með Hvalárvirkjun halda því fram að orkan úr Hvalá muni ekkert nýtast Vestfirðingum. Þetta heyrum við Vestfirðingar svo oft og er þessi yfirlætislega fullyrðing orðin ansi þreytt, enda ósönn. Samkvæmt skýrslu Landsnets um tengingu Hvalár sem kom út í vor kemur það skýrt fram að Hvalárvirkjun mun hafa jákvæð áhrif á afhendingaröryggið um alla Vestfirði. Staðreyndirnar gerast ekki skýrari eða sannari.

Rammaáætlun ónýt?

Hvalárvirkjun er í rammaáætlun, áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða. Hún komst í gegnum það nálarauga sem rammaáætlun er og hefur þurft að fara í gegnum ótrúlegustu hindranir. Ítrekað. Svo margar eru hindranirnar að verkefnið kemst varla áfram. Við erum því á krossgötum. Annað hvort fær verkefnið loksins að komast af stað eða við viðurkennum að rammaáætlunin er ónýt. Gleymum því ekki að rammaáætlunin var mikill sigur fyrir náttúrverndarsinna og átti að vera verkfæri til að greiða úr ágreiningi um hvað skyldi nýta og hvað vernda. Í staðinn hefur hún þau áhrif að ekkert gerist og við náum ekki að nýta orkuauðlindir okkar. Hvert skref er kært og aftur kært af sömu aðilunum. Þetta ferli er orðið alltof tímafrekt og fáir andstæðingar virkjuninnar virðast hafa völd til að tefja allt. Virkjun Hvalár á að fá að hefjast sem allra fyrst, annars verður ríkið að viðurkenna gagnsleysi rammaáætlunar og skerast í leikinn. Vestfirðir geta ekki endalaust setið á hakanum og horft á eftir tækifærum renna úr greipum íbúa og fyrirtækja vegna skorts á orku og afhendingaröryggi.

Hluti af lausn Árneshrepps

Á meðan á þessari endalausu bið stendur er sveitarfélagið Árneshreppur að berjast fyrir tilverurétti sínum. Það stefnir í að heilsársbúsetu þar muni líða undir lok ef ekki verður farið í einhverjar aðgerðir. Það er fúlt og sárt að hugsa til þess. Fólkið sem vaknar og sofnar í Árneshreppi allt árið um kring, ræktar þar landið og rennir til sjós, er fólkið sem þekkir sveitarfélagið sitt allra best. Þetta eru sérfræðingarnir í málum Árneshrepps. Það veit að Hvalárvirkjun er ekki að fara bjarga hreppnum, en veit líka að hún er hluti af lausninni. Hún er tækifæri fyrir Árneshrepp sem íbúar ætla að nýta til að efla svæðið. Þess vegna hefur sveitarstjórnarfólkið veitt virkjuninni brautargengi. Þó íbúar Árneshrepps séu fáir þá hljóta þeir að vera með öflugustu einstaklingum á landinu. Hverjir aðrir myndu standa teinréttir og klárir í næstu orrustu eftir aðfarir sl. árs? Tekist á við kosningasvindl andstæðinga virkjunar, verið úthúðuð fyrir að veita framkvæmdaleyfi og staðið í opinberu orðaskaki við yfirlýsta náttúruverndarsinna, sem virðast hafa úr meiri mannafla og peningum að spila úr en sveitarfélagið Árneshreppur. Íbúar Árneshrepps, eins og íbúar Vestfjarða, hafa margoft þurft að heyra frá virkjunarandstæðingum að Hvalárvirkjun muni ekkert gera íbúa Vestfjarða. Þetta hefur nú loksins verið hrakið þar sem staðreyndin er önnur. Hvalárvirkjun mun hafa jákvæð áhrif á afhendingaröryggi rafmagns um alla Vestfirði.

Hafdís Gunnarsdóttir,

formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga

DEILA