Sjótækni á Tálknafirði fær alþjóðlega vottun

Strafsstöð Sjótækni ehf á Tálknafirði. Mynd: Aðsend.

Sjótækni ehf á Tálknafirði hefur staðist öryggisvottun samkvæmt alþjóðlegum staðli ISO 45001 og hefur fengið endurnýjun á umhverfisstaðlinum ISO 14001. Vottunarstofan DNV-GL í Noregi hefur tekið út starfsemi Sjótækni ehf og hefur staðfest að fyrirtækið starfar samkvæmt öryggisstaðlinum ISO 45001 og umhverfisstaðlinum ISO 14001.

Líklega er Sjótækni fyrsta útgerðar- og verktakafyrirtæki landsins sem fær báðar þessar vottanir á starfsemi sína. Þessi staðfesting skiptir fyrirtækið miklu máli að sögn Lilju Magnúsdóttur, starfsmanns Sjótækni ehf og er trygging viðskiptavina fyrirtækisins  á að fyrirtækið sinni verkefnum sínum sem best verður á kosið.

Sjótækni ehf er hafsækinn verktaki sem sinnir uppsetningu, eftirliti, viðhaldi og þjónustu við ýmiskonar mannvirki í sjó og vatni fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög ásamt því að reka öfluga köfunarþjónustu. Framkvæmdir tengjast meðal annars neðansjávarlögnum, mannvirkjum í sjó og vatni, fiskeldi, skipaþjónustu, virkjunum og stóriðju. Fyrirtækið gerir út báta, vinnuskip, pramma og bílaflota og mikið af sérhæfðum tækjum og búnaði svo sem kafbáta og mælingatæki af fullkomnustu gerð.

Kjartan Hauksson, framkvæmdastjóri og eigandi segir að fyrirtækið sé að stækka og eflast.  Hann hefur um þrjátíu ára skeið veitt þjónustu af þessu tagi, svo sem köfun og Kjartan minnir á að hann hafi þjónustan fiskeldið inn í Ísafjarðardjúpi bæði á Nauteyri og Reykjanesi. Þjónusta við fiskeldið á Vestfjörðum er stór þáttur í starfsemi Sjótækni ehf en hún er fjölþættari en það og meðal annars annast viðhald og viðgerðir á sæstrengjum.

Aðalstarfsstöð fyrirtækisins er á Tálknafirði og hjá Sjótækni starfa 15 starfsmenn. Í vor keypti fyrirtækið mælingabát, sem er fjarstýrður úr landi og er notaður meðal annars við vegagerð og hafnagerð. Framundan eru verkefni í Vestmannaeyjum. Þá var keypt 380 tonna stálskip sem verður notað sem vinnsluskip við kapallagnir o. fl. Það verður skráð á Tálknafirði og mun heita Assa BA.

DEILA