Opnunarveisla Verslunarfélags Árneshrepps.

Í gær var formleg opnun verslunar í Norðurfirði þegar Verslunarfélag Árneshrepps opnaði búð sína. Á vef Litla Hjalla er sagt frá athöfninni.  Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu – og sveitarstjórnarráðherra, kom norður og opnaði verslunina formlega, hélt ræðu og afhjúpaði merki félagssins, sem er búið að setja utan á verslunarhúsið. Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti hélt ræðu svo og Arinbjörn Bernharðsson formaður verslunarfélagsins. Skúla Gautasyni var færður blómvöndur, en hann stóð mest í vinnu við stofnun félagssins, ásamt Evu oddvita og fleirum. Sigurður Ingi sagði í sinni ræðu „að verslun væri nauðsynleg í hverju byggðarlagi, til dæmis væri lítil verslun í hans heimbyggð í Hrunamannahreppi og þar væri lítið kaffihorn þar sem fólk gæti sest niður og spjallað, þar væri þetta kallað lygahornið, en hér mætti kalla þetta kjaftahornið“.

Margmenni mætti við þessa formlegu opnun Verslunarfélagsins og fengu sér kaffi og með því. Forláta brúnterta var bökuð og skreytt með merki Verslunafélagi Árneshrepps, og rjómi með, síðan skoðaði fólk verslunarhúsið og sumir versluðu.

 

Myndir: Jón G. Guðjónsson.

DEILA