Ný heilbrigðisstefna kynnt á opnum fundi á Ísafirði 18. júní

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.

Heilbrigðisráðherra efnir til opinna kynningarfunda um nýsamþykkta heilbrigðisstefnu til ársins 2030 í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og verður fundur haldinn í fundarsal hjúkrunarheimilisins Eyri á Ísafirði 18. júní næstkomandi. Fjallað verður um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Kallað hefur verið eftir stefnu í heilbrigðismálum hér á landi um árabil og hafa nokkrar atrennur verið gerðar að slíkri stefnumótun frá því að heilbrigðisáætlun sem samþykkt var á Alþingi árið 2001 rann sitt skeið árið 2010. Samþykkt stefnunnar markar því tímamót.

Í  meginatriðum snýst heilbrigðisstefnan um um hvernig skapa megi heildstætt heilbrigðiskerfi fyrir alla landsmenn sem tryggir sjúklingum samfellda þjónustu á réttu þjónustustigi þar sem saman fara gæði, öryggi, skilvirkni og hagkvæmni.

Fundurinn á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði 18. júní hefst kl. 17.00.

DEILA