Formaður Flokks fólksins fordæmir RÚV

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sme hún fordæmir vinnubrögð Ríkisútvarpsins í gærkvöldi. Snýr gagnrýni Ingu að umfjöllun um nýja fóstureyðingarlöggjöf. hafði Inga haft stór orð um innihald frumvarpsins en telur að Ríkisútvarpið hafi með myndbirtingu með  frétt gefið til kynna að Inga hafi viðhaft orðfæri sem hún segist ekki hafa notað.

Fer yfirlýsingin hér á eftir:

„Ríkisútvarpið sem á að vera vettvangur skoðanaskipta og umræðu í samfélagi okkar hefur brugðist þeirri skyldu sinni að fjalla um nýtt fóstureyðingafrumvarp heilbrigðisráðherra. Nánast engin samfélagsumræðu hefur farið fram um þetta mál þó ljóst sé að það er bæði viðkvæmt og afar umdeilt.

Í kvöldfréttum gærdagsins, kvöldið áður en lokaatkvæðagreiðsla í þessu erfiða og viðkvæma máli fer fram á þingi, kaus fréttastofa Ríkisútvarpsins að senda út sjónvarpsviðtal við móður barns sem hafði séð sig tilneydda til að fara í fóstureyðingu. Þarna kaus fréttastofan að fjalla um jaðartilfelli harms og sársauka í því skyni að búa til réttlætingu fyrir því að skilyrðislaust verði heimilt að eyða fóstrum allt til fram að 23. viku meðgöngu.

Fréttastofan hefur aldrei á neinum tímapunkti reynt að varpa ljósi á önnur tilfelli ljóss og gleði þar sem fyrirburar hafa lifað og vaxið upp sem heilbrigð börn. Í síðustu viku sendi ég fyrir hvatningu og með samþykki foreldra öllum fjölmiðlum eitt slíkt dæmi með ljósmyndum. Fréttastofa Ríkisútvarpsins sá enga ástæðu til að fjalla um það.

Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur ekki gefið mér kost á neinu tækifæri til að svara fyrir þá ásökun sem kom fram í ofangreindu sjónvarpsviðtali í gærkvöldi, að konan hefði verið kölluð morðingi. Í þessari frétt var hins vegar með ísmeygilegu myndmáli augljóslega gefið til kynna að ég væri sek um að hafa látið slík orð falla. Það hef ég aldrei gert.

Með þessari yfirlýsingu fordæmi ég vinnubrögð fréttastofu Ríkisútvarpsins.“

DEILA