Snjósleðaferðir frá Djupavík

Frá Djúpavík. Mynd : Magnús Karl Pétursson.

Vefurinn Litlihjalli í Árneshreppi segir frá því að margt hafi verið um manninn í vetur í sleðaferðum á Ströndum.

Þetta er fjórði veturinn í röð sem skipulagðar snjósleðaferðir eruí boði á Ströndum. Gist er á  Hótel Djúpavík og hafa þessar ferðir hleypt lífi í Árneshrepp á veturnar. Frá fyrsta vetri hafa hundruð manna heimsótt Strandirnar og fengið að sjá þetta töfrandi svæði skarta sínu fegursta í vetrabúningi, segir á vefnum.

Í vetur hafa nú þegar verið farnar fimm ferðir og sú sjötta væntanlega næstkomandi helgi. Gestir þessara ferða virðast vera ánægðir og margir koma ár eftir ár og þá oftast með nýja gesti með sér. Allt er til alls fyrir sleðamanninn í þessum ferðum. Gisting í uppábúnum rúmum, allur matur og leiðsögumenn er innifalið í ferðunum „segir Magnús Karl Pétursson hótelstjóri á Hótel Djúpavík.“

DEILA