Nova byggir upp á Vestfjörðum

Á undanförnum árum hefur Nova verið í umsvifamiklum fjárfestingum á farsímakerfum og þar með talið á Vestfjörðum. Bæjarfélög á Vestfjörðum eru víða með sterkt 4G samband en á Ísafirði hefur Nova sett upp 4.5G sendi sem er margföldun á afkastagetu og hraða en áður hefur boðist. 4.5G býður ljósleiðarahraða á farsímaneti.

Uppbygging 4.5G kerfisins nýtist sem undirlag fyrir uppbyggingu 5G til framtíðar en Nova hafa nú þegar hafið prófanir á 5G farsímasendum, fyrst íslenskra fjarskiptafyrirtækja. 4.5G og síðar 5G eru raunhæfur valkostur í stað ljósleiðararenginga og í því getur skapast mikið tækifæri til hagræðinga í innviðafjárfestingum, ekki síst á helst á drefibýlum svæðum.

Á síðasta ári fjárfesti Nova fyrir um 1 milljarð króna í fjarskiptakerfi sínu en áætlaðar eru sambærilegar fjárfestingar á þessu ári.

Vestfirðir ávallt framarlega

Nova hefur verið leiðandi í innleiðingu nýrra kynslóða fjarskiptatækni. Fyrirtækið setti upp fyrsta 3G farsímakerfið hér á landi árið 2006, hóf 4G þjónustu árið 2013 fyrst fyrirtækja og 4,5G þjónustu árið 2017 og hafa Vestfirðir ávallt verið í framarlega í þeirri uppbyggingu. Nova hefur hlotið viðurkenningu frá óháða vottunaraðilanum Ookla Speedtest fyrir að vera með hraðasta netið á Íslandi. Fyrirtækið hefur einnig verið í fararbroddi hvað varður þjónustu á farsímamarkaði en Nova hefur átt ánægðustu viðskiptavinina 10 ár í röð samkvæmt Íslensku Ánægjuvoginni. “Okkar markmið er að eiga ánægðustu viðskiptavinina á hraðasta netinu” – segir Ísfirðingurinn Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova.

Þeim fjölgar stöðugt tækjunum á heimilinu sem tengd eru internetinu. Það er því mikilvægt að nettenging heimilisins sé góð. Notendur gera sífellt meiri kröfur og nú þegar að bílar, armbandsúr og nýjustu heimilistækin eru öll tengd við netið þá þurfa fjarskiptakerfin að vera undirbúin og Margrét segir að Nova hafi lagt út í umtalsverða fjárfestingu til að vera á undan þörfinni fyrir aukna flutningsþörf. „Hver ný kynslóð þessara kerfa hefur haft í för með sér margföldun á hraða og þar með á notkunarmöguleikum farsíma, úrvali smáforrita og annarra samskipta. Stór stökk í nethraða hafa yfirleitt leitt af sér stofnun fjölda nýrra fyrirtækja og jafnvel beinar samfélagsbreytingar. Því er uppbygging fjarskiptakerfa í flokki afar mikilvægra innviðafjárfestinga.“

Þegar spurt er um hvort farsímanet Nova sé nógu öflugt til að keyra internetþörf heimilisins, þá er svarið já. „Afkastageta og hraði kerfisins er mun meira en þarf til að mæta allri netnotkun venjulegs heimilis. Sem dæmi má nefna að notandi sem er að horfa á Full HD sjónvarpsefni um internetið notar að meðaltali 5 mb/s. Það er því frábær valkostur að nýta 4.5G á farsímaneti í stað hefðbundinnar heimatengingar en með 4,5G geta notendur sem eru með nýlegan endabúnað (síma eða farsímanets-Router) átt von á að ná hraða allt að 600mb/s til sín í góðum aðstæðum og 60mb/s í frá sér ,“  sagði Margrét og bætti við. „Hjá Nova er líka vel fylgst með afkastagetu og á álagssvæðum hefur verið brugðist við henni í tíma og kerfin stækkuð og stillt þannig að allir njóti gæða kerfisins.“

Nova býður öllum uppá Nova TV sem er ókeypis sjónvarpsþjónustu í stað myndlykils, en það gerir fólki kleift að spara 25 þúsund krónur á ári í myndlyklagjöld.

 

“Við teljum að framtíð sjónvarps sé á netinu og eina sem þarf er öflug háhraða 4G/4,5G nettenging inná nútímahemilið. Með Nova TV einföldum við aðgengi að opnu stöðvunum á einum stað og hægt er að segja bless við óþarfa mánaðargjald af myndlyklum. Nova veitir ókeypis aðgang að öllu opnu sjónvarpsefni á Íslandi

Með þessu viljum við brjóta upp þá fákeppni sem hefur verið til að nálgast sjónvarpsefni á Íslandi.  Nova TV er fyrir alla sem vilja ekki vera risaeðlur, vilja horfa á sjónvarpið í gegnum netið og spara helling í leiðinni” segir Margrét.

Fyrir þá sem vilja ekki nota netið í símann býðst þér að skipta yfir, halda sama símanúmeri og greiða ekkert mánaðargjald fyrir ótakmarkað tal og SMS en Nova er eina fjarskiptafyrirtækið sem býður slíka þjónustu fyrir alla viðskiptavini.

Nova verður á Aldrei fór ég suður!

Nova verður með pop-up verslun í Aldrei búðinni og tekur Vestfirðingurinn Ólafur Atli Einarsson vel á móti öllum ásamt fríðu föruneyti.

DEILA