Kjarasamningarnir samstöðuaðgerð fyrir betra samfélagi

Ég naut þeirrar ánægju að sækja fundi hjá bæði VR og Eflingu í vikunni þar sem nýir kjarasamningar voru kynntir. Í samningunum var allt undir og sama má segja um fundina en flestar spurningarnar lutu þó að styttingu vinnuvikunnar og skattatillögum stjórnvalda. Samningarnir og yfirlýsing stjórnvalda býður uppá töluverða eftirfylgni og ljóst að það verður verkefni einstakra aðildarfélaga ASÍ og heildarsamtakanna að fylgja málum fast eftir og stjórnvalda að standa við stóru orðin. Vinnunni er ekki lokið þó samningar séu undirritaðir. Þess ber líka að geta að iðnaðarmenn eiga eftir að ganga frá samningum og sama má segja um nokkra aðra stóra hópa innan ASÍ, þar á meðal flugfreyjur og leiðsögumenn svo einhverjir séu nefndir. Allir hóparnir komu þó með innlegg í viðræður við stjórnvöld og þar skipti ekki síst máli áherslur iðnaðarmanna á breytingar á lífeyrismálum og áframhaldandi möguleika á að niðurgreiða húsnæðislán með séreignasparnaði.

Þó það sé ánægjulegt að sækja fundi hjá aðildarfélögum þá verð ég að segja að enn meiri ánægju veitir að segja erlendum gestum frá árangri okkar í nýafstöðnum samningum. Það kemur þeim spánskt fyrir sjónir að svo mikið hafi verið undir og að raunverulegar samfélagsbreytingar séu niðurstaðan. Sharan Burrow, framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga (ITUC), sagði samninginn vera „act of solidarity“ eða samstöðuaðgerð og í anda alþjóðlegrar baráttu vinnandi fólks fyrir betri samfélagi.

En þegar allt er undir, gleymist stundum að segja frá smásigrunum sem rötuðu inn í samninga ýmist hjá verkafólki eða verslunarmönnum. Þannig var líka samið um að styrkja réttindi ungmenna (færri á ungmennalaunum en áður), auka réttindi verkafólks til að sinna veikum börnum, uppsagnarákvæði í SGS samningnum voru styrkt, réttindi trúnaðarmanna voru aukin, rétturinn til orlofstöku utan orlofstímabila staðfestur, túlkaþjónusta aukin, bann við kynbundinni mismunun í vinnufatnaði innleidd, flutningur áunninna réttinda við aðilaskipti að fyrirtækjum tryggður, aukinn réttur fólks sem leigir húsnæði af atvinnurekanda, menntun starfsfólks í verslunum styrkt auk fjölda annarra atriða sem í flestum öðrum samningum hefðu talist til stórsigra.

Njótið helgarinnar og gleðilega páska,

Drífa Snædal

forseti ASÍ

DEILA