Hafrannsóknarstofnun: vaktar veiðiár

Hafrannsóknarstofnun hefur opnað sérstaka vefgátt um vöktun veiðiáa.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Atvinnuvegaráðuneytinu í gær.

Þar má finna fjölþættar upplýsingar sem varða laxeldi í sjó og vöktun veiðiáa í sambandi við það.

Á vefgáttinni eru m.a. veittar upplýsingar um veiðar og veiðistaði, upplýsingar um stofnstærð, fjölda áætlaðra eldislaxa skv. áhættumati, fjölda veiddra eldislaxa og hlutfall af áætlaðri heildarveiði. Einnig má finna upplýsingar um eldisstaði og fyrirtæki, áætlaða framleiðslu árið á undan og um strokulaxa. Þá er fyrirhugað að birta þar niðurstöður lúsatalninga.

Jafnframt geta þeir sem telja sig hafa veitt eldislax sent inn tilkynningu um veiðina á vefgáttina.

Athygli vekur þegar vefgáttin er skoðuð, að á Vestfjörðum eru þrjár ár skráðar í erfðavöktun, þrátt fyrir að ekki sé skráð veiði í þeim samkvæmt skýrslum Veiðimálastofnunar. Í vefgáttinni eru heldur ekki neinar upplýsingar um stofnstærðarmat laxastofns viðkomandi ár né heldur um veiði síðustu 10 ára í ánni.

Þetta eru árnar:

Selárdalsá í Arnarfirði, Botnsá í Tálknafirði og Sandsá á Ingjaldssandi.

DEILA