Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins á sunnanverðum Vestfjörðum á sunnudaginn

31. mars næstkomandi heldur þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hringferð sinni um landið áfram á sunnanverðum Vestfjörðum.

Þingflokkurinn stendur fyrir opnum fundum í Veitingastaðnum Hópinu á Tálknafirði kl. 15:00 og í Félagsheimilinu, Aðalstræti 107 á Patreksfirði kl. 16:30.

Fundirnir eru sem fyrr segir haldnir í tengslum við hringferð þingflokks Sjálfstæðisflokksins
sem hófst í kjördæmaviku Alþingis sunnudaginn 10. febrúar sl. Að þessu sinni ákvað
þingflokkurinn að fara sem ein heild um land allt í stað þess að þingmenn hvers kjördæmis
fundi einungis í eigin kjördæmum.

Hafa fundirnir heppnast einstaklega vel og þingmenn átt gagnleg og skemmtileg samtöl við
fólk vítt og breitt um landið. Fundirnir eru óformlegri en oft áður. Lagt er upp með að allir
þingmenn taki virkan þátt með spjalli við fundarmenn. Fundarmönnum gefst því gott tækifæri til að hitta þingmenn og ráðherra flokksins og ræða það sem skiptir máli.

Fundirnir eru öllum opnir og eru íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum sérstaklega hvattir til að mæta.

DEILA