Þungatakmarkanir á Vestfjörðum

Frá Vestfjarðavegi 60.

Vegagerðin hefur sent frá sér eftirfarani tilkynningu um þungatakmarkanir á vegum á Vestfjörðum:

Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður ásþungi takmarkaður við 10 tonn á eftirtöldum vegum frá kl. 08:00 fimmtudaginn 21. febrúar 2019.

Vestfjarðavegi 60:          frá vegamótum við Hringveg 1 hjá Dalsmynni (Brattabrekka)  að Flókalundi sem og  Barðastrandarvegi 62  og Bíldudalsvegi 63 að Flugvallarvegi 620 Bíldudal.

Djúpvegi 61:                      frá Vestfjarðavegi 60  í Reykhólasveit að Flugvallarvegi 631 í Skutulsfirði.

Innstrandavegi 68:          frá Laxárdalsvegi að Djúpvegi 61.

Drangsnesvegi 645

DEILA