Mestu sauðfjárafurðir í einu héraði landsins á síðasta ári voru í Strandasýslu. Reiknuðust þæt vera 30,5 kg eða það sama og var árið áður. Hæsta búið á Vestfjörðum var á Bassastöðum í Strandasýslu með 38,5 kg eftir kind. Það var svo það sjöunda hæsta á landinu á þann mælikvarða. Tvö önnur bú í Strandasýslu eru á lista yfir afurðahæstu búin, Björn og Badda á Melum 1 Árneshreppi með 36,5 kg eftir kind og Ragnar og Sigríður Heydalsá 1 í Tungusveit og 3 voru með 36,4 kg.
Miðað var við bú sem höfðu fleiri en 100 ær á skýrslum. Í meðfylgjandi töflu eru sýnd hæstu vestfirsku búin samkvæmt upplýsingum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins og stuðst við samantekt Bændablaðsins. Þar eru búum raðað eftir fallþunga. Að auki eru upplýsingar um fjölda sláturlamba, aldurs lambs við slátrun og vaxtarhraða pr dag. Það getur munað allt að 50 dögum í lífaldri lambs og það hefur eðlilega áhrif á fallþunga lambs. Greinilegt er að mikill vaxtarhraði einkennir lömbin í Strandasýslu og við Djúp.
Sauðfjárafurður 2018 | |||||
Á Vestfjörðum: | |||||
Nafn | býli | fj. Lamba | fallþungi | sláturaldur | vaxtarhraði |
Guðbrandur og Lilja | Bassastaðir | 334 | 19,9 | 138 | 145 |
Indriði og Inga | Skjaldfönn | 247 | 19,6 | 123 | 159 |
Rögnvaldur Gíslason | Gröf | 422 | 19,2 | 121 | 159 |
Karl Kristjánsson | Kambi | 532 | 19,0 | 123 | 156 |
Jón og Erna | Broddanesi | 293 | 19,0 | 135 | 141 |
Ragnar og Sigríður | Heydalsá 1 | 858 | 18,9 | 136 | 140 |
Magnús Kristjánsson | Gautsdal | 382 | 18,2 | 119 | 153 |
Utan Vestfjarða: | |||||
Ólafur Sindrason | Grófargili | 123 | 22,4 | 169 | 133 |
Kjartan Sveinsson | Bræðratungu | 351 | 21,4 | 165 | 130 |
Hákon og Þorbjörg | Svertingsstöðum | 179 | 21,1 | 135 | 156 |
Björn Björnsson | Syðri Brennihóll | 126 | 20,9 | 127 | 173 |
Helgi og Beate | Kristnes | 110 | 20,8 | 135 | 154 |