Strandabyggð: aukin útgjöld vegna félagsþjónustu

Hólmavík. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Í fjárhagsáætlun Strandabyggðar er rúmlega 30 milljónir króna færðar undir liðinn annað. Þar af langstærst 26 milljónir króna vegna félagsþjónustu,  sem er hækkun v.aukinnar þjónustu og breytingar á reglum um liðveislu.

Aðrir stórir liðir eru Vinnuskóli 3,5 milljónir króna og 2,5 milljónir í umhverfisátak.

Listinn í heild:

 Félagsþjónusta, hækkun v.aukinnar þjónustu og breytingar á reglum um liðveislu 26.000.000

 Leikskóli, kaup á tækjum og húsbúnaði, kr. 500.000

 Grunnskóli, kaup á tækjum og húsbúnaði, kr. 500.000

 Tónskóli, kaup á kennslutækjum kr. 200.000

 Félagsheimili, kaup á ljósum og öðrum búnai kr. 500.000

 Slökkvilið, kaup á 3 göllum kr. 600.000

 Skrifstofa, nýtt launakerfi, tölva í afgreiðslu og stóll. Þjónusta v. skjalavörslu, kr. 1.000.000

 Opin svæði, umhverfisátak kr.2.500.000

 Íbúðir, minniháttar viðhald kr. 250.000

 Vinnuskóli kr. 3.500.000. Þar meðtalin laun í vinnuskóla f. allt að 4 skv. samningi við Leikfélag um Strandir í verki.

 Dreifnám, ræsting kr.200.000.

DEILA