Stjórnmálaflokkarnir: 744 milljónir króna í styrk

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka fyrir árið 2019. Hæsta styrkinn fær Sjálfstæðisflokkurinn 178 milljónir króna. Næstir eru Vinstri grænir með 123 milljónir króna.

Um framlögin gilda lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Stjórnmálasamtök sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða eiga rétt til framlaga. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum.

Greiðslur eftir alþingiskosningar árið 2017 fyrir árið 2019 koma fram hér að ofan.

DEILA