Nýr samningur dómsmálaráðuneytis og Landsbjargar

Sigríður Andersen, dómsmálaráðherra, ásamt Gunnari Stefánssyni og Jóni Svanberg Hjartarsyni frá Landsbjörgu.

Skömmu fyrir jól var undirritaður nýr samningur milli dómsmálaráuneytisins og Landsbjargar.

Sigríður Andersen, dómsmálaráðherra, undirritaði fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins nýjan samning við Slysavarnafélagið Landsbjörgu um skipulags-, samhæfingar- og þjálfunarstarf Landsbjargar.

Markmið samningsins er að efla getu Slysavarnafélagsins Landsbjargar til að sinna skipulagningu, samhæfingu og þjálfun á svið leitar og björgunar, auk reksturs björgunarskipa. Samningurinn tekur ekki til þess starfs sem unnið er við leit og björgun, enda er þar um starf sjálfboðaliða að ræða.

Fyrri samningur rann út árið 2016, en greitt var eftir honum árin 2016 og 2017. Greitt verður samkvæmt nýja samningum frá 2018 til 2020. Sú þjónusta sem Landsbjörg veitir á grundvelli samningsins eru almannavarnir á hættu og neyðartímum, skipulagning og samhæfing varðandi leit og björgun, fræðsla björgunarsveita og rekstur björgunarskipa. Auk þessa sinnir Landsbjörg slysavörnum og unglingastarfi. Árleg greiðsla vegna samningsins miðað við forsendur fjárlaga árið 2018 er 147 milljónir króna.

DEILA