Húsfyllir á fundi Vegagerðarinnar á Reykhólum – 150 manns

Frá fundinum á Reykhólum, sem nú stendur yfir. Mynd: Bryndís Sigurðardóttir.

Nú stendur yfir fundur Vegagerðarinnar á Reykhólum. Þar kynnir Vegagerðin  sjónarmið sín  varðandi val á veglínu á milli Bjarkalundar og Skálaness.

Undirbúningur að framkvæmdum við vegagerð á Vestfjarðavegi milli Bjarkalundar og Skálaness hefur staðið lengi eða allt frá árinu 2004 þegar fyrsta tillaga að matsáætlun var lögð fram.

Frá nóvember 2005 hefur Vegagerðin lagt til B leiðina , sem síðar aðeins breytt fékk nafnið Þ- H leiðin.

Húsfyllir er á fundinum og skólahúsnæðið þétt setið. Margir Vestfirðingar aðrir en íbúar á Reykhólum hafa lagt leið sína á fundinn.

Uppfært kl 20:18.

Magnús Valur Jóhannsson, framkvæmdastjóri hjá vegagerðinni sagði í kvöld í samtali við Bæjarins besta að fundurinn hefði tekist mjög vel. Á fundinum hefðu verið um 150 manns víða að um Vestfirði og reyndar víðar. Margar fyrirspurnir voru bornar fram en fundarmenn voru almennt kurteisir. Stóru tíðindin eru þau að R leiðin féll á umferðaröryggismati og er því ekki valkostur miðað við forsendur sem Vegagerðin starfar eftir. Betur verður gert grein fyrir því máli  innan skamms.

 

 

DEILA