Yfirlýsing vegna notkunar á ólöglegum frammistöðubætandi efnum

Crossfit í Reykjavík.

Það er ljóst að notkun stera og annarra ólöglegra frammistöðubætandi efna hefur aukist mikið
síðustu ár. Það er því á okkar ábyrgð að viðurkenna vandann og bregðast við með ákveðnum
aðgerðum.
Þeir notendur sem sjálfir grípa til slíkra örþrifaráða blekkja ekki aðeins sjálfa sig heldur einnig
aðra þá er vilja stunda heilbrigðan lífsstíl. Notkun stera og annarra ólöglegra
frammistöðubætandi efna ýtir undir brenglaða líkamsímynd og gefur ungu fólki röng skilaboð
og óraunhæfar fyrirmyndir. Því viljum við sameinast um að draga skýr mörk og senda rétt
skilaboð.
Eftirfarandi íþróttafélög og líkamsræktarstöðvar fordæma hverskyns notkun stera og
ólöglegra frammistöðubætandi efna við þjálfun og lýsa því jafnframt yfir að notkun slíkra efna
verður ekki liðin innan þeirra húsakynna né í keppnum á þeirra vegum.

Mjölnir
Hreyfing
CrossFit Akureyri
CrossFit Reykjavík
CrossFit XY
Sparta
Reebok Fitness
Metabolic
Héraðsþrek, Fljótsdalshéraði
CrossFit Austur

DEILA