Ný stjórnarskrá mikilvæg

MMR hefur gert könnun á afstöðu landsmanna gagnvart mikilvægi þess að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá á yfirstandandi kjörtímabili. Könnunin var framkvæmd dagana 18. til 22. október 2018 og var heildarfjöldi svarenda 964 einstaklingar, 18 ára og eldri.

Heldur hefur dregið úr stuðningi við nýja stjórnarskrá frá könnun MMR um sama efni í september 2017. Þá töldu 56% mikilvægt að fá nýja stjórarskrá en nú 52%.

Helstu niðurstöður:

-Meirihluti landsmanna (52%) sagði mikilvægt að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá á yfirstandandi kjörtímabili en 34% allra svarenda sögðu það mjög mikilvægt. Hlutfall þeirra sem kváðu nýja stjórnarskrá mikilvæga lækkaði um 4 prósentustig frá könnun MMR sem framkvæmd var í september 2017.

-Konur reyndust líklegri til að segja endurnýjun stjórnarskrár mikilvæga (56%) heldur en karlar (49%).

– Hlutfall þeirra sem kváðu breytingar á stjórnarskrá mjög mikilvægar fór vaxandi með auknum aldri en 41% þeirra 68 ára og eldri sagði mjög mikilvægt að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá, samanborið við 28% þeirra 18-29 ára.

-Íbúar höfuðborgarsvæðisins (54%) voru líklegri en þeir búsettir á landsbyggðinni (48%) til að telja stjórnarskrárbreytingar mikilvægar.

– Stuðningsfólk Pírata (90%), Flokks fólksins (85%) og Samfylkingar (83%) reyndist líklegast til að segja það mikilvægt að landsmenn fái nýja stjórnarskrá á yfirstandandi kjörtímabili en stuðningsfólk Sjálfstæðisflokks (66%), Miðflokks (60%) og Framsóknarflokks (41%) reyndist líklegast til að segja það lítilvægt.

DEILA