Ómerktar heslihnetur í súkkulaði

Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir heslihnetum við neyslu á Síríus rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti. Súkkulaðið úr tiltekinni framleiðslulotu gæti innihaldið heslihnetur án þess að það komi fram á umbúðum vegna mistaka sem áttu sér stað við framleiðslu vörunnar.

Nánar um vöruna:

  • Vörumerki: Síríus
  • Vöruheiti: Rjómasúkkulaði með saltlakkrísflögum og sjávarsalti
  • Best fyrir: 04. janúar 2020
  • Lotunúmer: L1868
  • Framleiðandi: Nói Síríus, Hesthálsi 2-4, 110 Reykjavík
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Ástæða: Ómerktur ofnæmis- og óþolsvaldar
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar ehf. um land allt

Hnetur, þ.m.t. heslihnetur, og afurðir úr þeim eru á lista yfir ofnæmis- eða óþolsvalda. Ofnæmis- og óþolsvalda ber að merkja með skýrum hætti á umbúðum matvæla. Tekið skal fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru viðkvæmir fyrir hnetum.

Viðskiptavinir sem keypt hafa umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir hnetum eru hvattir til að neyta hennar ekki og farga. Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Nói Síríus í síma 575 1800.

DEILA