Dýrafjarðargöng – Framvinda vika 42

Hér er samantekt af því helsta sem gerðist í viku 42 við vinnu Dýrafjarðarganga.

Í vikunni var viðhafnarsprenging í göngunum í Dýrafirði og síðan var farið á fullt með gangagröft. Í lok vikunnar var búið að grafa 29,4 m sem er 1,8 % af leggnum sem er eftir (sem er 1.643,4 m) og er þá búið að grafa 69,6 % af heildarlengd ganganna. Efnið úr göngunum var notað í aðstöðusköpun en enn er unnið í frágangi á svæðinu, skemmum og skrifstofum. Í göngunum Arnarfjarðarmeginn var haldið áfram með lokastyrkingar í hægri vegg.

Allir starfsmenn sem starfa í Dýrafirði eru fluttir yfir frá Arnarfirði.

Engin vegavinna var í gangi í Arnarfirði en í Dýrafirði var lítillega unnið í námum og í veginum. Við Hófsána í Arnarfirði var unnið við mölun á efni sem verður notað í göngunum síðar.

Unnið hefur verið við mótauppslátt og járnalögn í nyrðri stöpli brúarinnar yfir Mjólká og styttist í að hann verði tilbúinn undir steypu.

Á meðfylgjandi myndum má sjá stafninn í Dýrafirði eftir fyrstu sprenginguna og útmokstur í göngunum Dýrafjarðarmegin.

DEILA