Stefna á 6000 tonna eldi í lokuðum kvíum í Djúpinu

Lokaðar kvíar í einni kerfisfestingu við Sæterosen í Nordland fylki í Noregi.

Fiskeldisfyrirtækið AkvaFuture ehf. hefur lagt fram matsáætlun fyrir fiskeldi í lokuðum sjókvíum í Ísafjarðardjúpi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá þeim en fyrirtækið auglýsir áætlunina á BB í dag. Auglýsingin er liður í umsóknarferli félagsins sem stefnir á allt að 6.000 tonna eldi í fjórum innfjörðum í Djúpinu, fáist samþykki yfirvalda. Hafrannsóknastofnun hefur þegar metið burðarþol svæðisins og telur að þar sé hægt að framleiða 30 þúsund tonn af laxi árlega.

Rögnvaldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri AkvaFuture, segir kosti lokaðra sjókvía mikla umfram opinna. „Við höfum fengið staðfest að þessi tækni kemur alfarið í veg fyrir að laxalús skaði eldislaxinn. Jafnframt er dregið stórlega úr umhverfisáhrifum laxeldis því með auðveldum hætti má safna upp botnfalli frá eldinu.“ Þá fyrirbyggi þessi eldistækni nánast alfarið að fiskur sleppi. „Aðeins við stórkostlegar hamfarir eða mistök við flutning er hætta á því,“ segir hann.

AkvaFuture ehf. er dótturfélag norska fiskeldisfyrirtækisins AkvaDesign AS sem hannar lokuðu kvíarnar, en systurfélagið AkvaFuture AS rekur laxeldi í lokuðum sjókvíum í Brønnøysund í Noregi. Þar hefur fyrirtækið fengið svokallað „þróunarleyfi“ frá yfirvöldum. Rögnvaldur segir að það stafi af því að norsk stjórnvöld hafi ekki veitt leyfi til fiskeldis í opnum kvíum síðan 2009 vegna mikilla neikvæðra umhverfisáhrifa. „Norsk stjórnvöld veita nú aðeins ný leyfi gegn strangari kröfum; svokölluð þróunarleyfi. Það væri áhugavert að sjá þennan sama metnað fyrir nýsköpun og framþróun hér á landi,“ segir Rögnvaldur.

Rögnvaldur var í viðtali við BB fyrr í þessum mánuði þar sem hann sagði nánar frá fyrirtækinu og áformum þeirra.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA