Opinn fundur um endurbætur á Vestfjarðarvegi í Reykhólahreppi

Reykhólar. Mynd: Árni Geirsson.

Sveitarstórn Reykhólahrepps hefur sent frá sér tilkynningu til að auglýsa opinn fund sem haldinn verður í matsal grunnskólans á Reykhólum í kvöld. Þar segir að endurbætur á Vestfjarðarvegi þoli enga bið. Til þess að ná megi sátt og koma þannig í veg fyrir tafir fékk sveitarstjórn Reykhólahrepps norsku verkfræðistofuna Multiconsult til að rýna tillögur Vegagerðarinnar að legukostum. Niðurstöður rýninnar verða kynntar á opnum fundi í grunnskólanum á Reykhólum, miðvikudaginn 27. júní, frá 20 – 22.

Endurbætur á veginum eru mikilvægt hagsmunamál fyrir alla íbúa Vestfjarða. Málið hefur tafist af ýmsum ástæðum, sem flestar eiga rætur að rekja til umhverfisáhrifa eða kostnaðar. Sveitarstjórn þykir því mikilvægt að sem best yfirsýn og fullvissa ríki um að sá kostur sem verður fyrir valinu sé skynsamleg málamiðlun.
Allir sem hafa áhuga eru hvattir til aðkoma á fundinn og kynna sér niðurstöður norsku sérfræðinganna. Í framhaldi af kynningunni mun sveitarstjórn taka endanlega afstöðu.

Sæbjörg

bb@bb.is

DEILA