Vortiltekt í Ísafjarðarbæ

Á meðfylgjandi mynd má sjá fyrirhugaða staðsetningu gáma undir garðaúrgang.

Ísafjarðarbær hefur forgöngu um vortiltekt í samvinnu við íbúa, skóla og fyrirtæki, en markmiðið er að gera Ísafjarðarbæ að enn fallegri og skemmtilegri bæ, íbúum sínum til sóma. Til að ná því markmiði munu leikskólar, grunnskólar og aðrar stofnanir bæjarins taka þátt.

Líkt og í fyrra verður einnig leitað til íbúa, hverfaráða og fyrirtækja í bænum og vonast Ísafjarðarbær til þess að allir leggist á eitt um að taka til og fegra umhverfi bæjarins. Starfsmenn Ísafjarðarbæjar munu aðstoða þátttakendur með því að taka við rusli sem tínt hefur verið saman og koma því í endurvinnslu eða urðun. Ísafjarðarbær leggur til gáma fyrir þetta átak, en nauðsynlegt er að upplýsa umhverfisfulltrúa um dagsetningu, tíma, staðsetningu o.s.frv. til að skipuleggja átakið.

Gámar undir garðaúrgang verða fram í byrjun júní í Hnífsdal, á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri en einnig verður garðaúrgangsgámur til staðar allan sólarhringinn á gámasvæði Funa, Ísafirði.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Ísafjarðarbæjar.

Margrét Lilja

milla@bb.is

DEILA