Lengd ganga í viku 19 var 2.207 m

Lengd ganganna í lok viku 19 var 2.207,0 m sem er 41,6 % af heildarlengd ganganna, en alls voru grafnir 86,6 m.

Sem fyrr eru aðstæður góðar í göngunum og göngin þurr. Nýtt rautt setlag, um 30-40 cm þykkt, kom í ljós í gólfi ganganna og hefur það verið að hækka í sniðinu eftir því sem lengra er grafið. Efni úr göngunum hefur mestmegnis verið keyrt beint í vegfyllingar eða til mölunar. Búið er að mala töluvert af efni sem verður notað í veg við Hófsá við bráðabirgðabrúna sem þar mun rísa.

Í forskeringunni í Dýrafirði hefur vinna við bergskeringu með rippun haldið áfram og verið að gera klárt fyrir vinnu við borun.

Í lok apríl var hiti mældur í bergi í útskoti E, um 1862 m inni í göngunum. Hiti á 1 m dýpi mældist 18,7 °C og á 5 m dýpi 19,1 °C.

Á meðfylgjandi myndum má sjá rauða setlagið, vinnu við sprautusteypun og mölun á efni úr göngunum.

 
Margrét Lilja
milla@bb.is
 
DEILA