Nýr framkvæmdastjóri Hólmadrangs

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson.

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hólmadrangs, rækjuvinnslunnar á Hólmavík. Hann er 51 árs gamall og fæddur og uppalinn á Álftanesi en á ættir að rekja í Bitrufjörð á Ströndum. Sigurbjörn er menntaður heimspekingur frá Háskóla Íslands og vélvirkjameistari frá Iðnskólanum í Reykjavík, en nú er hann einnig við nám í viðskiptalögfræði í Háskólanum á Bifröst. Hann hefur meðal annars stýrt fyrirtækinu GO-ON ehf sem hefur verið í innflutningi á varahlutum og vélbúnaði og þjónustað bæði útgerð og sjávarútveginn. Sigurbjörn er kvæntur Halldóru Jónsdóttur sem er hjúkrunarfræðingur.

Blaðamaður BB.is sló á þráðinn til Sigurbjarnar til að heyra hvernig starfið legðist í hann: „Ég er mjög spenntur fyrir þessu og hlakka mikið til. Þetta hefur alltaf verið draumur minn að fá að komast þarna norður og mér finnst alltaf þegar ég er á svæðinu eins og ég sé einhvern veginn kominn heim. Ég hlakka mikið til að taka þátt í samfélaginu á staðnum. Ég er mikill útivistarmaður og er að klára nýliðaprógram hjá hjálparsveitinni í Garðabæ svo ég vonast til að ég geti lagt hönd á plóg til dæmis í björgunarsveitinni Dagrenningu. Starfið leggst mjög vel í mig, þetta er spennandi og krefjandi áskorun sem ég ætla að standa undir,“ segir Sigurbjörn kátur í bragði.

Dagrún Ósk

DEILA