Bók um Fortunu slysið

Út er komin hjá Vestfirska forlaginu bókin Fortunu slysið í Eyvindarfirði á Ströndum 1787.  Guðlaugur Gíslason frá Steinstúni og Jón Torfason tóku hana saman. Strandlengjan frá Hornbjargi og langt suður eftir Ströndum, með öllum sínum flóum, fjörðum og annesjum, var löngum annáluð fyrir að vera hættuleg skipum, stórum og smáum, enda hafa farist þar ótal skip í tímans rás. Í bókinni sagt frá þeim hörmungaratburðum sem áttu sér stað þegar kaupskipið Fortuna strandaði í Eyvindarfirði á Ströndum í september 1787. Öll áhöfn skipsins týndi lífinu.

Halldór Jacobsson, sýslumaður á Felli í Kollafirði, sem kunnur er af afskiptum sínum af Fjalla- Eyvindi og Höllu, stjórnaði rannsókn Fortunu strandsins. Ekki var þar allt sem sýndist og ýmislegt athugavert við meðferð sýslumanns á strandgóssinu.

Skjölin sem geyma þessa 230 ára gömlu sögu, og er stuðst við í bókinni, eru öll varðveitt í Þjóðskjalasafni Íslands.

smari@bb.is

DEILA