Glæsilegir Dýrafjarðardagar í vændum

Fjör á Dýrafjarðardögum.

Hinir árlegu Dýrafjarðardagar verða með einkar glæsilegum hætti þetta árið, en hátíðin fer fram dagana 30. júní – 2. júlí. Enn er verið að vinna í dagskránni en nú þegar er búið að fastnegla marga afar áhugaverða viðburði sem dekka vítt áhugasvið. Má þar nefna fyrirlestur Óttars Guðmundssonar geðlæknir um kynlíf í fornsögunum. Einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Emmsjé Gauti, ætlar að trylla lýðinn á dansleik. Frábærir tónleikar hans á Aldrei fór ég suður um páskana eru öllum í fersku minni sem þá sóttu og öruggt að Gauti mun ekki draga neitt af sér og sínum mönnum þegar hann rappar í dýrfiskri sumarnóttinni.

Einnig má nefna tónleika í Þingeyrarkirkju þar sem þær Jóhanna Halldórsdóttir og Helga Aðalheiður Jónsdóttir leiða saman krafta sína í áhrifaríku tónleikaprógrammi byggðu á íslensku þjóðlögunum. Áheyrendur eru teknir með í tímaferðalag aldir aftur í tímann og upplifa þannig eitt ár af blæbrigðum árstíðanna. Tölvuhljóð eru eftir Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoða.

Ýmislegt verður í boði fyrir yngri kynslóðirnar, eins og hoppukastalar, loftboltar, Ævar vísindamaður mætir á svæðið og margt fleira.

Þá verður gönguferð um slóðir Gísla Súrsonar í Haukadal og einnig gönguferð með leiðsögumanni um Keldudal.

Nánari upplýsingar um Dýrafjarðardaga má nálgast hér.

DEILA