Flugslysaæfing á Gjögurflugvelli

Á vefnum litlihjalli segir frá flugslysaæfingu sem var í Árneshreppi í síðustu viku:
Á fimmtudaginn 17 klukkan 10.00 var boðunarprófun, vegna flugslyss á Gjögurflugvelli. Allir sem eru á boðunarlista vegna flugslyss á Gjögurflugvelli áttu að fá tilkynningu í GSM síma.
Á föstudaginn 18 var uppsetning vettfangs á flugvellinum. Einnig var skyndihjálparfræðsla og notkun hjartastuðtækja, smávegis bóklegt en aðallega verklegt, sem var í félagsheimilinu í Trékyllisvík. Síðan var farið yfir almennt um flugslysaæfinguna.
Á laugardaginn 19 var í félagsheimilinu Eldvarnir og slökkvitækjanotkun fyrir heimili, bæði bókleg og verkleg kennsla. Síðan var förðun leikara sem taka þátt í flugslysaæfingunni. Síðan byrjaði flugslysaæfingin sjálf uppúr klukkan 13.00. Þar átti að hafa slasast sex manns, misjafnlega slasað fólk eftir flugslys. Einnig var æfing í að slökkva elda sæm kveiktir höfðu verið. Að sögn verkefnastjórans Elvu Tryggvadóttur gekk flugslysaæfingin vel.

DEILA