Fræðslumiðstöð Vestfjarða er með námskeiðið sem ætlað þeim sem vilja auka atvinnuréttindi sín til að starfa sem skipstjóri á smáskipum upp í allt að 15m lengd í strandsiglingum (með að hámarki 12 farþegum og takmörkun á farsviði), enda hafi þeir áður öðlast 12m skipstjórnarskírteini eða lokið viðurkenndu smáskipaskipstjórnarnámi sem í boði var fyrir 1. september 2020.
Til viðbótar þessu námskeiði þarf að ljúka siglingatíma (þjálfun um borð í skipi) og viðurkenndu öryggisfræðslunámi til þess að fá útgefið skírteini.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Tækniskólann (Skipstjórnarskólann). Námskeiðið er að mestu í fjarnámi en gert er ráð fyrir þremur staðlotum á Ísafirði sem nemendur þurfa að taka þátt í. Einnig þurfa nemendur að fara í verklega þjálfun í siglingahermi.
Náminu er skipt í nokkra námsþætti sem allir mynda eina heild til þessara réttinda, m.a. siglingareglur, stöðugleika, siglingahermi, fjarskipti (ROC skírteini) og viðhald vélbúnaðar.
Allt kennsluefni, æfingar og lesefni er á kennsluvefnum Innu en nemendur hafa að auki aðgang að samtali við kennara samkvæmt skipulagi. Nemendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjafa hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða sem þeir eru hvattir til að nýta sér.