Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara sem eru með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 21. ágúst 2023.

Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga eða frá rúmum 61% niður í 2,8% þó að jafnaði er hlutfallið um 18% þegar horft er til allra sveitarfélaga.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Mýrdalshreppi. Alls eru 61,1% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 594 erlendir ríkisborgarar af alls 972 íbúum hreppsins. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi með 43,1% og Bláskógabyggð með 36,4% íbúa.

Á Vestfjörðum er hlutfallið hæst í Vesturbyggð og Súðavík þar sem það er 32%.

Lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara eru í Reykhólahreppi. Alls eru 2,8% íbúa hreppsins með erlent ríkisfang, 7 erlendir ríkisborgarar af alls 246 íbúum hreppsins. Næst lægsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Árneshreppi 3,8% en þar eru 2 erlendir ríkisborgarar og Skagabyggð með 4,6% íbúa.

DEILA