Hægt að fá greitt frá Tryggingastofnun einu sinni á ári

Í hverjum mánuði fá um 70 þúsund einstaklingar greiðslur frá TR og fyrir hluta af hópnum, það er þau sem eru með lágar greiðslur, getur verið hagkvæmara að fá greitt einu sinni á ári.

Þannig eru réttindi viðkomandi reiknuð út árlega á grundvelli skattframtals síðasta árs og ein greiðsla berst í kjölfarið.

 Ein greiðsla á ári í stað mánaðarlegra greiðslna hentar einkum þeim sem eru með grunnframfærslu frá öðrum en TR og þeim sem eru með óreglulegar og háar fjármagnstekjur.

 Helstu kostir þessa fyrirkomulags eru:

  • Greiðsla lífeyris er rétt þar sem réttindin eru reiknuð eftirá og byggja á skattframtali
  • Hvorki myndast innistæða né skuld  í kjölfar uppgjörs
  • Tekjuáætlun er óþörf

Til að fá eina greiðslu á ári í stað mánaðarlega þarf að sækja um á Mínum síðum TR.

DEILA