VETRARDAGUR Á ÍSAFIRÐI UM 1913

Frú Eleonora Rasmussen (fyrir miðju), eiginkona Gustav Rasmussen lyfsala, ásamt tveimur konum fyrir fram apótekið í Hafnarstræti um 1913. Ljósm. Carl Gustav Adolf Rasmussen.

Þann 23. febrúar 1911 opnaði danski lyfsalinn Carl Gustav Adolf Rasmussen (1882–1939) apótek í húsinu að Pólgötu 1 á Ísafirði. Þar bjó hann með fjölskyldu sinni þar til þau fluttu frá Ísafirði sumarið 1920.

Rasmussen var áhugamaður um ljósmyndun og tók mikið af myndum, aðallega fjölskyldumyndir en einnig umhverfismyndir sem flestar eru teknar á Ísafirði. Eiginkona Rasmussen var Eleonora Jörgine Elise Sörensen (1884–1962). Þau eignuðust 10 börn sem náðu fullorðinsárum og voru fimm þeirra fædd á Ísafirði. 

Á meðfylgjandi mynd má sjá Eleonoru ásamt tveimur óþekktum konum fyrir framan apótekið með barnavagn og kerru að vetri til.

Af vefsíðu Ljósmyndasafns Ísafjarðar

DEILA