Í frétt frá Landhelgisgæslunni kemur fram að eftirlits- og sjómælingabáturinn Baldur sé nú byrjaður árlegt úthald við dýptarmælingar vegna sjókortagerðar.
Í sumar verður Baldur við mælingar við Strandir og verður áherslan lögð á endurmælingar í sjókort númer 52 sem nær frá Horni að Gjögri.
Mælingar á þessu svæði eru megninu til frá fyrri hluta síðustu aldar og því orðið tímabært að mæla svæðið með fjölgeislamæli og nákvæmri staðsetningatækni.
Í upphafi úthaldsins setti höfnin á Baldri upp flóðmæla á Norðurfirði og Hólmavík og munu gögnin úr þeim nýtast við úrvinnslu mælinganna. Einnig verða gögnin úr flóðmælunum notuð til leiðréttinga á stuðlum til sjávarfallaútreikninga á svæðinu og er sú vinna gerð í samstarfi við Vegagerðina.

