Sætt og Salt kaffihús í Súðavík

Sætt og Salt hefur opnað kaffihús á Langeyri.  

Þar er boðið upp á úrvals kaffi frá Kaffitár. Tilvalið er að koma í heimsókn, tilla sér niður með kaffibollann, smakka súkkulaði og hafa það huggulegt í notalegu umhverfi við náttúruna og fuglalífið á Langeyrartjörninni.

Vonandi verða gestir og heimamenn ánægðir með nýja kaffihúsið í Súðavík sem verður opið á virkum dögum frá 09.30 – 16:00 og á laugardögum frá 11:00 – 15:00.

DEILA