Reykhólahreppur er eitt af fimm sveitarfélögum sem kanna áhrif loftslagsbreytinga

Fimm sveitarfélög taka þátt í tilraunaverkefni sem miðar að því að aðstoða íslensk sveitarfélög í þeirri vinnu sem fram undan er við að greina áhrif og afleiðingar loftslagsbreytinga og móta aðgerðir til aðlögunar.

Þannig verði sveitarfélögum færðir skýrari ferlar og aðferðir sem gera þeim kleift að búa sig undir möguleg áhrif loftslagsbreytinga á innviði, atvinnugreinar, efnahag og samfélög.

Sveitarfélögin sem um ræðir eru Akureyrarbær, Sveitarfélagið Hornafjörður, Fjallabyggð, Reykhólahreppur og Reykjanesbær.

Öllum sveitarfélögum landsins býðst að vera aðilar að verkefninu í gegnum svokallaðan rýnihóp. Þar verður hægt að fylgjast með framgangi verkefnisins og taka þátt í mótun niðurstaðna.

DEILA