Vinsælustu nöfnin 2022

Þjóðskrá hefur tekið saman vinsælustu nöfn á Íslandi árið 2022 meðal nýfæddra barna sem voru samtals 4.335 einstaklingar.

Emil var vinsælasta fyrsta eiginnafn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en 42 drengjum var gefið nafnið Emil, næst vinsælustu nöfnin voru Viktor og Aron.

Embla var vinsælasta nafnið meðal nýfæddra stúlkna sem fyrsta eiginnafn, en 30 stúlkum var gefið nafnið Embla, þar á eftir voru nöfnin Aþena og Emma.

Þór var vinsælasta annað eiginnafn drengja og Rós á meðal stúlkna.

Ef horft er á samanburð milli ára má sjá að drengjanafnið Emil tekur fyrsta sætið af Aron. Viktor tekur stökk frá þrítugasta sæti í annað sæti og Birnir hækkar verulega.

Hvað stúlkurnar varðar má sjá að Embla heldur fyrsta sætinu, í öðru sæti er Aþena sem hækkar um nokkur sæti og í því þriðja er Emma. Nafnið Lilja tekur hástökk á milli ára, fer úr 68. sæti í það fjórða.

Nánar má sjá um þetta á skra.is

DEILA