ÚRSLIT Í STÓRU UPPLESTRARKEPPNINNI

Fimmtudaginn 16. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fram í Félagsheimilinu í Bolungarvík. Ellefu nemendur úr 7. bekk í skólunum á norðanverðum Vestfjörðum tóku þátt og stóðu sig með mikilli prýði. Helga Jónsdóttir deildarstjóri í Grunnskólanum í Bolungarvík setti og kynnti hátíðina

Auk vandaðs lesturs þátttakenda fengu áhorfendur að hlýða á nemendur úr Tónlistarskóla Bolungarvíkur flytja nokkur lög. Voru það Sigurborg Sesselía Skúladóttir sem lék lagið Childrens song eftir Selvadore Rahni, Sylvía Rós Hermannsdóttir sem lék lagið Jósúa frá Jeríkó og Breki Þór Arnarson sem lék lagið Oh, when the saints. Þá flutti Alicja Lenkiewicz ljóð á móðurmáli sínu, pólsku.

Dómarar keppninnar voru þau Steinunn Guðmundsdóttir, Elfar Logi Hannesson, Guðbjörg Hjartardóttir, Gunnar Ólafsson og Sólrún Geirsdóttir.

Þeirra beið mikið vandaverk að velja sigurvegara en niðurstaðan var sú að Jósef Ægir Vernharðsson frá Grunnskólanum á Suðureyri hlaut 1. verðlaun, Katla Guðrún Kristinsdóttir hlaut önnur verðlaun og Sigurborg Sesselía Skúladóttir hlaut þriðju verðlaun, en þær eru báðar úr Grunnskóla Bolungarvíkur.

Öll fengu þau bókina Dýrin eftir Illuga Jökulsson og Veru Illugadóttur í verðlaun sem var gjöf frá Pennanum Eymundsson, og peningaverðlaun frá Landsbankanum.

Þá fengu allir þátttakendur bókagjöf frá Kómedíuleikhúsinu og viðurkenningarskjal fyrir þátttöku sína í keppninni.

Markmið upplestrarkeppni í 7. bekk grunnskóla er að vekja athygli og áhuga á vönduðum upplestri og framburði. Miðað við frammistöðu þessara ungmenna ætti framtíðin að vera björt í þessum málum. 

DEILA