Þróun Gróanda í takt við samfélagið á Ísafirði

Á morgun föstudaginn 24. mars mun Hildur Dagbjört Arnardóttir flytja erindið „Þróun Gróanda í takt við samfélagið á Ísafirði“ í Vísindaporti Háskólaseturs

Gróandi er að byrja sitt áttunda ræktunartímabil þessa dagana og ætlar Hildur að kynna og svara spurningum um starfsemina sem fer fram þar. 

Starfsemi Gróanda er í stöðugri þróun til þess að allir íbúar á svæðinu sem vilja geti fengið aðgengi að hollum mat, ræktuðum með sjálfbærustu ræktunaraðferðum sem finnast. Í gegnum árin hefur skapast mikil reynsla og fjölmargar sjálfbærar ræktunaraðferðir prófaðar og aðlagaðar að okkar aðstæðum hér á Vestfjörðum.

Undanfarið hefur Gróandi einnig einbeitt sér að fræðslu og námskeiðshaldi til að áhugasamir geti komið hingað og lært af okkar reynslu. Síðasta ár fór í hönd innleiðing á nýju rekstrarmódeli sem gerir okkur kleift að bjóða öllum að taka þátt í starfi Gróanda – á þann hátt sem hentar hverjum og einum.

Hildur Dagbjört er landslagsarkitekt og vistræktarkennari. Hún flutti til Ísafjarðar fyrir 8 árum og hefur síðan þá starfað bæði sem landslagsarkitekt í Verkís og sem grænmetisbóndi í Gróanda. Hún heldur einnig námskeið og fyrirlestra um vistrækt, sjálfbærni og ræktun.

Vísindaportið er opið öllum og hefst stundvíslega klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða á 2. hæð.

DEILA