Steyptir draumar – líf og list Samúels Jónssonar

Út er komin bókin Steyptir draumar – líf og list Samúels Jónssonar.

Í þessari bók er fjallað um líf og list Samúels og birtar myndir af verkum hans sem flest eru í einkaeigu, en mörg hafa glatast.

Einnig eru birtar myndir sem sýna Samúel á síðustu árum hans á Brautarholti og myndir af listasafninu eftir lát hans.

Jafnframt segir hér af endurreisnarstarfinu frá því Félag um endurreisn listasafns Samúels var stofnað 1998.

Ólafur J. Engilbertsson er ritstjóri bókarinnar. Gerhard König skrifar um sýn og aðferðir Samúels og ásamt Kára G. Schram skrifa þeir um endurreisnarstarfið.

Bókin er 160 blaðsíður að stærð, innbundin og í stóru broti. Hún fæst í helstu bókaverslunum og hjá útgefendum, Listasafni Samúels og Sögumiðlun.

DEILA